PS5 Showcase Sony byrjaði með látum. Square Enix kynnti nýjan Final Fantasy leik og verður sá aðeins fáanlegur á PlayStation leikjavélum.
Month: september 2020
Nýr leikur er væntanlegur fyrir PlayStation hvar Sackboy sjálfur er í aðalhlutverki. Sá heitir Sackboy: A Big Adventure.
Ubisoft hefur kynnt útgáfudag og lagalista Just Dance 2021. Leikurinn kemur út fyrir PlayStation 4 í nóvember.
Katamari serían hefur löngum verið ein sú súrasta, hér er á ferðinni endurgerð á PlayStation 2 klassík frá árinu 2004.
Ítalska leikjastúdíóið 3DClouds vinnur að metnaðarfyllsta verkefni sínu til þessa, sjóræningja RPG leiknum King of Seas.
Ef þú fílar gamaldags bíla- og kappakstursleiki er hér einn sem vert er að prófa, Hotshot Racing frá Sumo Digital.
PQube var að kynna nýjan RPG sveita-hermi sem kemur á næsta ári. Sá heitir Kitaria Fables og lítur út fyrir að vera alvarlega krúttlegur.
Meðal þess sem kom fram í kynningu Sony var tilurð Horizon II. Leikurinn er framhald hins geysivinsæla Horizon Zero Dawn.
Einn af þeim leikjum sem voru kynntir fyrir PS5 í gær var Hogwarts Legacy. Eins og titillinn gefur til kynna gerist leikurinn í Wizarding World.
Steel Wool Studios og ScottGames vinna að gerð Five Nights at Freddy’s: Security Breach. Leikurinn var kynntur á PS5 Showcase streymi Sony í gær.
Hér birtum við það sem við vitum um nýju PlayStation vélina. Útgáfudag, verð, vélbúnað, leiki og fleira.
Ubisoft vinnur að gerð jaðaríþróttaleiksins Riders Republic. Gefið hefur verið út að hann komi út á næsta ári, í febrúar 2021.
Óháða stúdíóið Double Damage Games var að tilkynna um útgáfudag geimbardagahermisins Rebel Galaxy Outlaw. Sá kemur út í næstu viku fyrir PlayStation 4.
DON'T NOD Entertainment komu úr kafinu og gáfu út nýja stiklu fyrir Twin Mirror á dögunum.
Ubisoft hafa gefið út að vinsæli skotleikurinn Rainbow Six Siege muni koma út á PlayStation 5 og stefnir fyrirtækið á að úgáfan verði samhliða útkomu nýju vélarinnar.
Team17 Digital eru að senda frá sér nýjan leik sem gerist í heimi The Escapists, í þetta sinn ertu fastur í frumskóginum.
Margir áhugaverðir titlar voru kynntir á The Future of Gaming streymi Sony. Einn af þeim var Kena: Bridge of Spirits frá Ember Lab.
Nýjasta innleggið í hina vinsælu hryllingsseríu Amnesia er væntanlegt í næsta mánuði og mun bera heitið Rebirth.
Gearbox, framleiðendur Borderlands 3, kynntu hvers er að vænta með leikinn á næstu kynslóð leikjatölva.
Einn af þeim leikjum sem beðið er eftir með nokkuri eftirvæntingu fyrir PS4 er Ghostrunner frá One More Level.