

Nokkrir titlar úr hinni vinsælu Final Fantasy seríu eru í vinnslu, aðdáendum til mikillar ánægju.
Crisis Core Final Fantasy VII: Reunion er endurgerð PSP (PlayStation Portable) leiks sem kom út árið 2008 á ferðaleikjavél Sony. Sá hefur verið ófáanlegur um hríð en er væntanlegur fyrir PS4 og PS5 síðar á þessu ári. Leikurinn gerist fyrir atburði Final Fantasy VII.

Final Fantasy XVI er væntanlegur næsta sumar (2023) og verður aðeins á PlayStation 5 leikjavélum. Leikurinn er hasar RPG með meira fullorðins söguþræði að sögn Square Enix.
Final Fantasy VII Rebirth er svo kominn með áætlun um útkomu veturinn 2023 og verður sá einnig PS5 leikur. Rebirth er framhald Final Fantasy VII Remake.

Nánar:
Push Square: https://www.pushsquare.com/features/poll-which-final-fantasy-game-are-you-most-looking-forward-to
Square Enix: https://www.square-enix-games.com/en_EU/home