Sony hélt kynninguna State of Play seint í gærkvöldi og voru sýndar væntanlegar leikjaútgáfur fyrir PlayStation.
Kynningin tók um 40 mínútur í flutningi og við tókum saman það helsta sem sýnt var.
Capcom sýndu útgáfustiklu fyrir Monster Hunter Wilds. Leikurinn kemur út í þessum mánuði, 28. febrúar. Nánar um það hér: Stikla
SEGA og Lizardcube kynntu 2D hack-n-slash ævintýrið Shinobi: Art of Vengeance. Leikurinn verður gefinn út fyrir PS4 og PS5 þann 29. ágúst 2025. Nánar um það hér: Umfjöllun
SEGA og Sonic Team sýndu Sonic Racing: CrossWorlds. Leikurinn kemur út fyrir PS4 og PS5 en útgáfudagur er ekki fastsettur. Nánar um það hér: Umfjöllun
Bandai Namco kynntu fyrir okkur Digimon Story Time Stranger, nýjasta innleggið í skrímsla-söfnunar seríunni. Leikurinn kemur út á þessu ári fyrir PlayStation 5. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Næsta stikla var úr Lost Soul Aside sem er hasar hlutverkaleikur frá kínverska stúdíóinu UltiZero Games. Leikurinn verður gefinn út 30. maí á PlayStation 5. Nánar um það hér: Umfjöllun
SEGA og Ryu Ga Gotoku stúdíóið sýndu gameplay úr væntanlegum leik þeirra, Like a Dragon: Pirate Yakuza in Hawaii. Sá kemur á markað 20. febrúar. Nánar um það hér: Stikla
1047 Games voru með fjölspilunar skotleikinn Splitgate 2 og kynntu Alpha prófanir hans á næstunni. Leikurinn á að koma út síðar á árinu. Nánar um það hér: Vefsíða
2K og Gearbox kynntu útgáfudag Borderlands 4 en leikurinn kemur út á PlayStation 5 þann 12. september. Nánar um það hér: Umfjöllun
Hazelight og EA Originals sýndu nýjasta leik stúdíósins sem gerði It Takes Two en afurðin heitir Split Fiction. Væntanlegur á PS5 þann 6. mars. Nánar um það hér: Umfjöllun
Directive 8020 er ný vísinda-hrollvekja frá Supermassive Games. Leikurinn kemur út á PS5 2. október. Nánar um það hér: Umfjöllun
Það er engin State of Play kynning án FNAF – sýnt var úr nýjasta innlegginu í þessari vinsælu seríu: Five Nights At Freddy’s: Secret of the Mimic. Kemur út 13. júní. Nánar um það hér: Umfjöllun

Næst fengum við að sjá ævintýrið The Midnight Walk – nýjan leik frá höfundum Lost in Random. Væntanlegt fyrir PS5 og PSVR2 8. maí. Nánar um það hér: Umfjöllun
Konami kynnti krúttlegan þrauta-platformer sem heitir Darwin’s Paradox. Leikurinn kemur út síðar á árinu. Nánar um það hér: Umfjöllun
Koei Tecmo voru næstir með roguelite leikinn Warriors: Abyss en sá kom út í dag fyrir PS4 og PS5. Nánar um það hér: Stikla
Capcom kynntu Onimusha 2: Samurai’s Destiny endurútgáfu sem koma á út 23. maí. Nánar um það hér: Stikla
Sama fyrirtæki sýndi okkur Onimusha: Way of the Sword sem er nýjasta innleggið í seríunni. Sá leikur er þó ekki væntanlegur á markað fyrr en 2026. Nánar um það hér: Umfjöllun
Konami næst, Metal Gear Solid Delta: Snake Eater er kominn með útgáfudag, 28. ágúst. Nánar um það hér: Umfjöllun
Hasar ævintýraleikur sem beðið hefur verið eftir með eftirvæntingu, Hell is Us, kemur út fyrir PS5 þann 4. september. Nánar um það hér: Umfjöllun
ROUND8 Studio sýndu DLC viðbót fyrir leik þeirra, Lies of P: Overture. Sú kemur út í sumar. Nánar um það hér: Stikla
Dreams of Another er nýjasta innleggið í PixelJunk seríunni. Við fengum að sjá kynningarstiklu leiksins sem er væntanlegur fyrir PS5 og PSVR2 síðar á árinu. Nánar um það hér: Umfjöllun
Days Gone Remastered er að detta á PS5 og kemur út 25. apríl. Nánar um það hér: Stikla
Blue Prince, nýr indie þrautaleikur kemur út fyrir PS5 í vor. Nánar um það hér: Umfjöllun
Annar indie leikur sem vert er að hafa auga með er Abiotic Factor. Eftir því sem við komumst næst er um að ræða sex spilara survival crafting leik frá Playstack og Deep Field Games. Væntanlegur sumarið 2025. Nánar um það hér: Umfjöllun
Þá var komið að Tides of Annihilation en þar er á ferðinni nýtt hasar ævintýri frá Eclipse Glow Studio. Nánar um það hér: Umfjöllun
Reikon Games og Deep Silver sýndu afurð sína Metal Eden, vísinda skotleik sem verður fáanlegur fyrir PS5 þann 6. maí 2025. Nánar um það hér: Umfjöllun
Við fengum gameplay stiklu úr MindsEye, nýjum hasar ævintýraleik sem er væntanlegur í sumar. Nánar um það hér: Umfjöllun
Að lokum fengum við að frétta hvað Sony stúdíóið Housemarque er að bralla. Þar á bæ er unnið að nýjum þriðju persónu hasarleik sem heitir Saros. Ævintýrið er væntanlegt á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla