Sony streymdu State of Play vefkynningu á þriðjudag þar sem áherslan var á nýja leiki frá Japan og öðrum löndum í Asíu. Við tókum saman það helsta sem þar kom fram.

Fyrst fengum við stiklu úr endurgerðinni Dragon Quest VII Reimagined en leikurinn er væntanlegur fyrir PS5 þann 5. febrúar 2026. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Þá var komið að Inkonbini: One Store. Many Stories sem er kósí leikur um starf í verslun þar sem þitt hlutverk er að sjá um búðina og sinna viðskiptavinum. Leikurinn mun koma út fyrir PS5 í apríl á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla
Næsta innlegg í Coffee Talk seríunni heitir Coffee Talk Tokyo og er væntanlegt á markað þann 5. mars 2026. Nánar um það hér: Stikla

Hrollvekju serían BrokenLore heldur áfram og við fengum að sjá stiklu úr næsta leik sem kallast BrokenLore: Unfollow og kemur út þann 16. janúar. Nánar um það hér: Stikla
Höfundar BrokenLore, Serafini Productions, kynntu einnig nýjasta innleggið í seríunni, BrokenLore: Ascend. Leikurinn er væntanlegur á markað um mitt næsta ár. Nánar um það hér: Stikla
Koei Tecmo og Team Ninja voru næst á svið með stiklu úr Fatal Frame II: Crimson Butterfly Remake en endurgerðin kemur út þann 13. mars 2026. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla

Koei Tecmo Games sýndu næst DLC viðbótina Visions of Four Heroes fyrir hasarleik þeirra, Dynasty Warriors: Origin. Viðbótin kemur út þann 22. janúar á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla
Kazunori Yamauchi frá Polyphony Digital var næstur á svið og sagði frá DLC viðbót sem er væntanleg á markað fyrir Gran Turismo 7. Viðbótin mun innihalda 50 nýjar keppnir, þar á meðal 24 stunda þolakstur. Power Pack viðbótin kemur út fyrir PS5 þann 4. desember. Nánar um það hér: Stikla
Hasar þrautaleikurinn MotionRec stefnir á PlayStation útgáfu næsta vor. Nánar um það hér: Stikla

Open World RPG ævintýrið Wandering Sword kom upphaflega út fyrir PC vélar árið 2023 en nú er komið að PlayStation útgáfu. Leikurinn er væntanlegur fyrir PS5 þann 28. maí 2026. Útgáfan mun innihalda alla aukapakka sem hafa verið gefnir út fyrir leikinn. Nánar um það hér: Stikla
No Sleep For Kaname Date – From AI: The Somnium Files fjallar um ævintýri Kaname Date, hann leitar hinnar týndu samfélagsmiðlastjörnu Iris sem hefur verið numin á brott. Leikurinn kemur út fyrir PS4 og PS5 þann 26. febrúar 2026. Nánar um það hér: Stikla

Kappakstursleikurinn Tokyo Xtreme Racer snýr aftur á PlayStation á næsta ári. Leikurinn verður gefinn út fyrir PS5 þann 26. febrúar 2026. Nánar um það hér: Stikla
Once Upon A Katamari, sem kom út fyrir PS5 í síðasta mánuði, er að fá tvo DLC aukapakka sem bæta nýrri tónlist og aukahlutum við leikinn. Fyrri útgáfan heitir Katamari Damacy Series Dance Dance Remixes og kemur út þessum mánuði en seinni pakkinn sem kallast Katamari Damacy Series NEO Remixes er væntanlegur síðar í vetur.

Sonic er mættur í Pac-Man World 2: Re-Pac, en út er kominn nýr DLC aukapakki fyrir leikinn sem bætir við þremur nýjum borðum og persónum úr heimi Sonic the Hedgehog. Nánar um það hér: Stikla
Fyrsta DLC viðbótin fyrir Digimon Story Time Stranger heitir Episode Pack 1: Alternate Dimension og kemur á markað í vetur. Pakkinn inniheldur ný skrímsli til að safna og eykur við söguna í leiknum. Nánar um það hér: Stikla
Super Robot Wars Y er líka að fá sína fyrstu DLC viðbót sem inniheldur karaktera úr þremur vélmenna anime seríum, Galaxy Cyclone Braiger, The Big O og Fuuto PI: The Portrait of Kamen Rider Skull. Super Robot Wars Y DLC 1 kemur út þann 21. nóvember. Nánar um það hér: Stikla

Monster Hunter Wilds fær ókeypis uppfærslu þann 16. desember sem kynnir til leiks nýtt skrímsli að berjast við og ýmsar lagfæringar á vopnum og leiknum almennt.
Sjálfur Svampur Sveinsson mætir í Sonic Racing: CrossWorlds þann 20. nóvember. DLC viðbótin SpongeBob SquarePants Pack verður gefin út þann dag. Nánar um það hér: Stikla
Næst fengum við að berja augum stiklu úr 2D roguelike ævintýrinu Never Grave: The Witch and The Curse. Leikurinn er væntanlegur fyrir PS4 og PS5 þann 5. mars 2026. Nánar um það hér: Stikla

ARC System Works sýndu stiklu úr væntanlegum leik þeirra, BlazBlue Entropy Effect X. Sá er væntanlegur á markað fyrir PlayStation 5 þann 12. febrúar 2026. Nánar um það hér: Stikla
Damon and Baby er blanda af könnunarleik og twin-stick skotleik og er væntanlegur fyrir báðar kynslóðir PlayStation snemma á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla
3D hasar RPG ævintýrið Kyouran Makaism er nýr leikur frá höfundum Disgaea seríunnar. Leikurinn kemur út fyrir PS5 þann 29. janúar 2026. Nánar um það hér: Stikla

Anime skotleikurinn Fate Trigger er væntanlegur í early access útgáfu á fyrsta ársfjórðungi 2026. Nánar um það hér: Stikla
Við fengum að sjá nýja stiklu úr Octopath Traveler 0 en RPG ævintýrið kemur út fyrir PS4 og PS5 þann 4. desember. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Bardagaleikurinn Marvel Tokon: Fighting Souls er í beta prófunum og við fengum að sjá stiklu þar sem tvær hetjur úr leiknum, Spider-Man og Ghost Rider voru í aðalhlutverki. Nánar um það hér: Stikla

Að lokum kynntu Bandai Namco og FromSoftware fyrstu DLC viðbótina fyrir Elden Ring Nightreign en leikurinn kom út í maí á þessu ári. Viðbótin heitir The Forsaken Hollows og inniheldur nýtt svæði, nýjar hetjur og andstæðinga til að kljást við. Elden Ring Nightreign: The Forsaken Hollows kemur út þann 4. desember. Nánar um það hér: Stikla
Nánar:
Umfjöllun PlayStation.Blog: https://blog.playstation.com/2025/11/11/state-of-play-japan-november-2025-all-announcements