
Neytendasamtökin Stichting Massaschade & Consument í Hollandi hafa höfðað hópmálsókn gegn Sony vegna einokunar fyrirtækisins á sölu leikja og aukapakka fyrir PlayStation í gegnum PS Store. Farið er fram á greiðslu skaðabóta til viðskiptavina vegna ólögmætra viðskiptahátta og einokunartilburða fyrirtækisins. eSports.is fjallar ítarlega um málið.
Vilja samtökin meina að Sony hafi markvisst komið í veg fyrir að aðrir aðilar geti selt stafrænt efni fyrir PlayStation og þannig tryggt sér einokun á markaðnum. Færð eru rök fyrir því að þannig hafi fyrirtækið haft háar fjárhæðir af neytendum.
Svipað mál var höfðað gegn Sony í Bretlandi og er áætlað að réttarhöld í því máli fari fram í byrjun næsta árs.
Ef niðurstaða dómstóla verður sú að Sony hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gætu neytendur átt rétt á bótum. Fyrirtækið gæti einnig þurft að opna fyrir sölu annara á stafrænum vörum fyrir PlayStation.
Nánar:
Umfjöllun eSports.is: https://esports.is/playstation-skattur-undir-smasja-neytendur-i-hollandi-krefjast-milljarda-i-skadabaetur