
Hið fornfræga leikjafyrirtæki Atari hefur undanfarin misseri verið duglegt að endurvekja klassíska leikjatitla. Árið 2023 keypti fyrirtækið útgefendurna Digital Eclipse og Nightdive Studios sem bæði sérhæfa sig í endurhönnun og endurútgáfu eldri leikja.
Samkvæmt frétt Business Wire hefur Atari komist að samkomulagi við Ubisoft um kaup fyrrnefnda félagsins á útgáfurétti nokkurra titla með það að markmiði að gefa þá út fyrir nýrri leikjavélar. Leikirnir eru:
- Cold Fear (2005)
- Child of Eden (2011)
- I Am Alive (2012)
- Grow Home (2015)
- Grow Up (2016)
Wade Rosen, stjórnarformaður og forstjóri Atari hafði þetta um málið að segja í viðtali við fréttavefinn Business Wire:
„Bæði Ubisoft og Atari eru þekkt fyrir að skapa heima sem spilarar verða ástfangnir af, leiki sem hitta í mark hjá mörgum kynslóðum leikjaspilara. Ekki bara vegna þess hvernig þeir eru spilaðir heldur hvernig þeir fá okkur til að líða innanbrjósts. Okkur hlakkar til að kynna þessa titla á ný ásamt því að leita leiða til að auka við og þróa leikjaseríurnar til framtíðar.“
Nánar um leikina:

Cold Fear (2005)
Survival Hrollvekja sem kom út á vegum Darkworks. Leikurinn kom m.a. út fyrir PlayStation 2 leikjavélina.
Lýsing: „In a ferocious Arctic storm, distress signals are sent from a mysterious Russian whaler. As leading Coast Guard veteran Tom Hansen, you board to investigate and discover unthinkable horrors lurking beneath the ship’s bloodstained decks.
Brave dangerous waters: Rocked by huge breakers, you must steady your nerves and aim to evade a watery grave.
Keep your bearings: Battle against increasingly mutated enemies in treacherous, unstable environments.
Unleash a torrent of weapons: Create fatal traps and use shotguns, flame throwers, or any object you can find to survive.“

Child of Eden (2011)
Musical Rail skotleikur frá japanska stúdíóinu Q Entertainment. Leikurinn kom m.a. út fyrir PlayStation 3 leikjavélina.
Lýsing: „Child of Eden is abstract shooter that will send players diving into a visual matrix of synchronized music and mind-blowing visuals.“

I Am Alive (2012)
Hasar survival ævintýri sem var framleitt af Darkworks og Ubisoft Shanghai. Leikurinn kom m.a. út fyrir PlayStation 3 leikjavélina.
Lýsing: „I Am Alive casts the player as a lone survivor in a believable, dark and insecure post-apocalyptic world.“

Grow Home (2015)
Platform ævintýri frá Ubisoft Reflections. Leikurinn kom m.a. út fyrir PlayStation 4 leikjavélina.
Lýsing: „Experience the freedom of unbounded climbing as you take control of BUD, a procedurally animated robot on a quest to save his planet. Create your own path through an alien world as you control and ride a giant plant on a vertical journey to the stars.“

Grow Up (2016)
Platform ævintýri og framhald Grow Home sem kom út ári fyrr. Leikurinn kom m.a. út fyrir PlayStation 4 leikjavélina.
Lýsing: „Leaping from mind-boggling heights, bouncing off Champolines, soaring inches from floating islands, BUD can do it all – that look of mild terror, that’s his daredevil face. Help the adorable little robot collect MOM’s scattered ship parts and return them to the moon.“
Nánar:
Atari: https://atari.com
Digital Eclipse: https://www.digitaleclipse.com
Nightdive Studios: https://nightdivestudios.com
Frétt Business Wire: Atari Announces Strategic IP Agreement With Ubisoft To Revive Five Acclaimed Titles