
Uppboðsfyrirtækið Kraft Auction Services er með áhugaverða skráningu fyrir aðdáendur GTA 6 en bifreið sem notuð var við framleiðslu leiksins er nú á uppboði hjá fyrirtækinu. Leikjavefurinn Game Rant greindi frá.

Um er að ræða 2013 árgerð af Chevrolet Caprice með V8 vél og ýmsum aukabúnaði fyrir löggæslustörf. Má þar nefna ljósabúnað, sírenu, skilrúm milli fram- og aftursæta og sérhönnuð sæti fyrir handjárnaða farþega. Bifreiðin er rækilega merkt lögreglunni í Vice City og var að sögn seljanda notuð af hönnuðum leiksins til að þrívíddarskanna við framleiðslu hans. Þessi bifreið verður því hluti af GTA 6 þegar leikurinn kemur út á næsta ári. Bíllinn er ekinn 75321 mílur.

Þegar þetta er ritað (21.08.2025) stendur verðið í 3.250 bandaríkjadölum sem reiknast sem rétt rúmlega 400 þúsund íslenskar krónur. Uppboðinu verður fram haldið eftir 2 daga.

Núverandi eigendur ökutækisins er fyrirtækið Rodz and Bodz Movie Car Museum í Coloradofylki. Hæstbjóðandi mun geta greitt fyrir bifreiðina með reiðufé, gildu krítarkorti eða ávísun með bankaábyrgð.

Grand Theft Auto VI er væntanlegur fyrir helstu leikjavélar þann 26. maí á næsta ári.
Nánar:
PS Fréttir – Útgáfu GTA6 frestað til næsta árs: https://psfrettir.com/2025/05/02/utgafu-gta6-frestad-til-naesta-ars
Umfjöllun Game Rant: https://gamerant.com/gta-6-car-development-for-sale
Uppboðsfyrirtækið Kraft Auction Services: https://bid.kraftauctions.com/auctions/142/lot/95254-gta-6-vice-city-police-dept-2013-chevrolet-caprice-ppv?tab=details
Rockstar Games: https://www.rockstargames.com/VI
Stikla: