
Útgefandinn Perp Games hefur verið öflugur í stuðningi við PSVR og PSVR2 og hafa fjölmargir leikir á þeirra vegum komið út fyrir sýndarveruleika-græjur Sony.
Næst á dagskrá er endurgerð hrollvekjunnar Slender: The Arrival fyrir PSVR2. Upprunalegi leikurinn kom út fyrir PS4 árið 2013 og uppfærð útgáfa á PS5 tíu árum síðar. Það er kanadíska stúdíóið Blue Isle Studios sem á heiðurinn að framleiðslunni en þeir gerðu einnig PS4 og PS5 leikina sem á undan komu.
Eiginleikar PSVR2 eru nýttir til fulls, m.a. með titringi, viðnámi og 360 gráðu hljóðhönnun. Lofa höfundarnir áður óþekktum hryllingi og óþægilegheitum meðan þú reynir að forðast ómennið Slender í leiknum.

Nánar um leikinn:
Slender: The Arrival is the official videogame adaptation of Slender Man; the paranormal phenomenon that has been terrifying the curious-minded all around the globe. Get ready to experience the terror like never before by entering the world of Slender: The Arrival in virtual reality.
Back in 2012, Slender: The Eight Pages was released as a short, experimental first-person game that helped breathe new life into the horror genre through its use of unadulterated tension building and fear.

Slender: The Arrival is the official re-imagining and expansion of the original game, featuring a brand-new storyline, new characters, improved visuals, great replay value and most importantly, survival horror at its finest.
[UPPFÆRT 01.05.2025]
Til stóð að Slender: The Arrival kæmi út 13. maí en nýjustu fregnir herma að útgáfunni hafi verið frestað þar til síðar á árinu.
Nánar:
Umfjöllun PlayStation Blog: https://blog.playstation.com/2025/03/20/slender-the-arrival-vr-arrives-on-ps-vr2-may-13
Útgefandinn Perp Games: https://perpgames.com/game/slender-the-arrival-vr
Stikla: