Free-to-Play leikurinn Disney Speedstorm kom út á árinu, um er að ræða kart kappakstursleik með persónum úr heimi Disney.
Þó leikurinn sé ókeypis að sækja og spila þá er boðið upp á að kaupa dót sem kostar „real money“. Þessir hlutir hjálpa þér að komast hraðar og ná forskoti á andstæðinga. Þarna er á ferð ein ömurlegasta aðferð sem við höfum séð af „pay-to-win“ því leikurinn er að sjálfsögðu aðallega markaðssettur fyrir börn í huga.
Ábending til foreldra: það er ekki þess virði að bjóða börnum ykkar upp á þetta. Ömurleg markaðssetning.