X-Out Resurfaced: Endurgerð sem reynir á taugarnar

X-Out Resurfaced

Framleiðendur: KRITZELKRATZ 3000 og Ziggurat Interactive
Útgefandi: ININ Games
Útgáfudagur: 20.02.2025

Endurútgáfur og endurgerðir eldri leikja er iðnaður sem færist sífellt í aukana og ekkert nema gott um það að segja. Eftir því sem meðalaldur leikjaspilara hækkar eykst eftirspurn eftir gömlum og góðum leikjum sem eldri spilarar þekkja úr fortíðinni. Nýrri kynslóðir fá líka tækifæri til að spila klassíska leiki sem hafa legið í gleymsku lengi.

Í þetta sinn hverfum við aftur um heil 35 ár, til árdaga heimilistölvunnar, þegar Commodore Amiga var ein heitasta vélin á markaðnum. Skotleikir (shoot-em-up) höfðu notið vinsælda um hríð en þeir leikir gerast flestir í geimnum og ganga út á að skjóta illar geimverur í spað. Í X-Out er sögusviðið hins vegar hafið og það sem leikurinn er best þekktur fyrir, verslun þar sem þú getur fjárfest í nýjum skipum, vopnum og viðbótum til að eiga betri möguleika á að eyða óvinum.

Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki spilað frumútgáfuna enda átti ég aldrei Amiga tölvu, því renndi ég blint í sjóinn með að spila þennan leik. Umsögn um hann verður því að skoða sem mat á leiknum eins og hann er í dag án samanburðar við upprunalega leikinn.

Í leiknum stýrir þú kafbáti sem siglir um óvinveitt neðansjávar umhverfi sem er fullt af óvinum, skotbyrgjum og gildrum. Í upphafi færðu val um að útbúa bátinn þinn með byssum, eltisprengjum og varnarbúnaði, ef þú nærð að klára borðið færðu stig sem þú getur notað til að uppfæra skipið þitt. Þú hefur aðeins eitt líf í leiknum – þú þolir nokkur skot frá óvinum sem er sýnt með stöðustiku – en ef þú klessir á umhverfið er það game over. Leikurinn gefur þér þannig engin grið ef þú gerir mistök. Þá er bara að byrja upp á nýtt og reyna að útbúa kafbátinn sem best til að granda óvinum á ný.

X-Out Resurfaced er side-scrolling skotleikur sem minnir á spilakassaleiki fortíðar. Grafíkin er endurhönnuð til að virka á nútíma leikjavélum og er flott útfærð. Tónlistin í leiknum er að sama skapi í anda gamalla skotleikja og passar vel við viðfangsefnið. Allt í allt skemmti ég mér vel í leiknum, þótt ég hefði þurft að spila borðin nokkuð oft til að komast áfram.

Lokaorð: Þetta er ákaflega vel heppnuð endurgerð sem reynir á þolinmæði spilara.

Plúsar: Vel heppnuð endurgerð á klassískum leik, grafík og tónlist í fyrsta klassa.

Mínusar: Leikurinn refsar fyrir mistök og gæti verið óaðgengilegur fyrir þá sem þola illa erfiðleikastigið.

Einkunn: 8.0

Leikurinn var spilaður á PlayStation 5. Notaður var kóði frá útgefanda.

Stikla: