Slys og óhöpp tækluð í Ambulance Life

Ambulance Life: A Paramedic Simulator
Framleiðandi: Aesir Interactive
Útgefandi: Nacon
Útgáfudagur: 06.02.2025

Það var ekkert kaffi að fá úr þessum sjálfsala, ég athugaði 🙁

Það var með smá kvíða að ég tókst á við spilun Ambulance Life: A Paramedic Simulator. Í fyrsta lagi eru hermar (simulators) ekki mínar ær og kýr, í annan stað þá hef ég hvorki reynslu af stórslysum, hjúkrun eða sjúkraflutningum.

Ambulance Life: A Paramedic Simulator er önnur afurð þýska leikjaframleiðandans Aesir Interactive. Áður hafði fyrirtækið getið sér gott orð með útgáfu Police Simulator: Patrol Officers fyrir nokkrum árum. Efnistök leikjanna og virkni er ekki ósvipuð. Í fyrri leiknum var unnið með löggæslu, í þessum leik eru það sjúkraflutningar og fyrsta hjálp á slysstað.

Lófatölvan geymir lífsnauðsynlegar upplýsingar til að geta brugðist rétt við í öllum aðstæðum.

Í byrjun er valið um erfiðleikastig, Classic eða Simulation. Classic hjálpar þér á ýmsa vegu meðan Simulation gerir það alls ekki. Ég valdi Classic því ég er núbbi.

Leikurinn gengur út á að þú vinnur sem sjúkraflutninga persóna sem bregst við útköllum á sjúkrabíl í skálduðu borginni San Pelicano. Þar er nóg um slys og óhöpp og því rétt að vera vel vakandi og með á nótunum. Hver vakt getur tekið 15-45 mínútur og þú vinnur þér inn XP með því að halda lífinu í sjúklingum sem þú annast á vaktinni. Eftir því sem þú safnar þér meira XP opnast fyrir fleiri sjúkdóma, lækningatæki til að vinna með þá og að lokum fleiri svæði í borginni. Svæðin eru alls þrjú, í byrjun færðu aðeins að svara útköllum í Downtown, en með meiri reynslu og fumlausum viðbrögðum í háska opnast svæðin Carmine Center og Saint Johaines.

Af og til í leiknum þarftu svo að bregðast við stórum slysum (hópslysum) og þarft í þau skipti að hlúa að mörgum slösuðum í einu. Þá er notuð sk. Triage-aðferð þar sem þú þarft á skjótan hátt að flokka slasaða í fjóra flokka: grænan, gulan, rauðan eða svartan. Þeim sem falla í síðast nefnda flokkinn verður ekki bjargað.

Babú! Babú! Babú! Babú!

Íbúar San Pelicano eru margir og lenda í fjölbreyttum háska. Í vinnunni getur þú þurft að meðhöndla kvíðaköst, reiðhjólaslys, skotsár, eiturlyfjatengd óhöpp og húsbruna svo eitthvað sé nefnt. Eftir að þú kemur á slysstað þarftu að spyrja fórnarlömb og vitni spurninga, greina vandamálið með hjálp lófatölvu og bregðast við á réttan hátt. Tölvan sem þú notar geymir þær upplýsingar sem þú safnar þér um hvern sjúkling, leggur til viðbrögð við aðstæðum og þar er hægt að finna leiðbeiningar og fróðleik um hina ýmsu sjúkdóma.

Eftir að hafa veitt fyrstu hjálp er sjúklingurinn fluttur um borð í sjúkrabílinn en þar er hægt að tengja hann við græjur og framkvæma flóknari aðgerðir ef nauðsynlegt er. Að lokum er viðfangið flutt á næsta sjúkrahús þar sem lífi þess verður (vonandi) bjargað.

Á vettvangi hópslyss er nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum.

Ég skemmti mér ágætlega við spilun Ambulance Life: A Paramedic Simulator. Þetta er fróðleg nálgun á viðfangsefnið „viðbrögð við slysum“ og innlit í líf sjúkraflutningafólks almennt. Leikurinn gerði vel í að leiða mig, byrjandann, í gegnum ferlið og kenna mér á tæknina við spilun hans. Að bregðast við hættuástandi, oft undir tímapressu, fær hjartað til að slá örar. Og mér þótti gaman að bruna á slysstað á sjúkrabíl með full ljós og sírenuna á fullu.

Grafík og hljóð í leiknum er, látum okkur segja, fullnægjandi. Sumt í leiknum hefði þó mátt fínpússa betur fyrir útgáfu. Ambulance Life átti það til að frjósa hjá mér. Í sumum aðstæðum varð ég var við clipping, þ.e. karakterar og verkfæri sköruðust á skjánum, sem lítur óþægilega út. Raddsetning er OK en því lengur sem þú spilar leikinn geta raddirnar í talstöðinni og félaga þinna orðið endurtekningasamar.

Þessi var með nett kvíðakast.

Lokaorð: Áhugaverður leikur sem gerir margt vel. Hefði mátt fínpússa betur fyrir útgáfu.

Plúsar: Spennandi að sinna mismunandi útköllum. Kennir margt um viðfangsefnið og er hjálplegur fyrir byrjendur.

Mínusar: Grafík og hljóð gætu verið betri og leikurinn frýs á stundum.

Einkunn: 7.0/10

Leikurinn var spilaður á PlayStation 5. Notaður var kóði frá útgefanda.

 

Nánar um leikinn:

Útgefandinn Nacon: http://www.nacon.com

X: https://x.com/TheAmbulanceSim @TheAmbulanceSim

Höfundar leiksins á X: https://x.com/AesirInteractiv @AesirInteractiv

Vefsíða: https://aesir-interactive.com

Stikla: