
Silent Hill hrollvekju serían ætti að vera flestum kunn, hún hefur allt frá árinu 1999 getið af sér fjölda leikja og hliðarafurða eins og kvikmynda og myndasagna.
Nýjasta innleggið, Silent Hill f, var fyrst kynnt í lok árs 2022 og hefur því verið í þróun um hríð. Í þetta sinn er sögusviðið ekki smábær í Bandaríkjunum heldur þorp í Japan.

Unglingurinn Shimizu Hinako býr í afskekkta þorpinu Ebisugaoka í Japan sjöunda áratugarins. Dularfull þoka umvefur bæinn og breytir lífi stúlkunnar í ósegjanlegan hrylling. Hún þarf að berjast við yfirnáttúrulegar verur sem ásækja hana og leysa ýmsar þrautir til að lifa af.
Útgefendur leiksins, Konami, sáu ástæðu til að vara sérstaklega við efni hans og eftirlitsaðilar virðast vera sammála. Leikurinn hlaut merkinguna 18+ í Japan og yfirvöld í Ástralíu hafa neitað honum útgáfu í óbreyttri mynd.

Nánar um leikinn:
In 1960s Japan, Shimizu Hinako’s secluded town of Ebisugaoka is consumed by a sudden fog, transforming her home into a haunting nightmare.
As the town falls silent and the fog thickens, Hinako must navigate the twisted paths of Ebisugaoka, solving complex puzzles and confronting grotesque monsters to survive.

Immerse yourself into Hinako’s world imagined by renowned author Ryukishi07, with entrancing music, including pieces by Akira Yamaoka, and beautiful visuals in a gripping tale of doubt, regret, and inescapable choices. Will Hinako embrace the beauty hidden within terror, or succumb to the madness that lies ahead?
Discover a new chapter in the SILENT HILL series, blending psychological horror with a haunting Japanese setting.

[UPPFÆRT 04.06.2025]
Silent Hill f kemur út fyrir PlayStation 5 þann 25. september. Leikurinn verður einnig gefinn út fyrir PC vélar á Steam.
Nánar:
Vefsíða: https://www.konami.com/games/silenthill/f
Höfundarnir NeoBards: https://neobards.com
Silent Hill serían á X: https://twitter.com/silenthill
Stikla: