Fréttavefirnir PS Fréttir og eSports.is hafa tekið höndum saman og hafið samstarf um miðlun frétta af íslensku leikjasenunni.
PS Fréttir hefur frá árinu 2020 fjallað um leikjaútgáfur með sérstakri áherslu á PlayStation leikjavélar. Á vefnum má finna gagnrýni, viðtöl og ýmsar tækniupplýsingar tengdar leikjavélum frá Sony. Vefslóð: http://www.psfrettir.com
eSports.is er meðal elstu og virtustu miðla landsins á sviði rafíþrótta og hefur starfað í nærri 17 ár. Vefurinn fjallar um keppnir, keppnislið og helstu fréttir úr heimi tölvuleikja, þar á meðal fréttir af rafíþróttum í leikjum á borð við Counter-Strike, Call of Duty, Quake, Warcraft, FIFA og Rocket League. Vefslóð: http://www.esports.is
PS Fréttir eru á samfélagsmiðlum:
FaceBook: http://www.facebook.com/PSFrettir
Bluesky: https://bsky.app/profile/erkiengill.bsky.social
X: https://x.com/PSFrettir
eSports.is er á samfélagsmiðlum:
FaceBook: https://www.facebook.com/esports.is
X: https://x.com/eSportsis
Youtube: https://www.youtube.com/wwwesportsis
Facebook grúppa: Tölvuleikir, mót & fréttir: https://www.facebook.com/groups/1551873138833113
