Listakona sem kallar sig 4nt1r34l (Antireal) birti færslu á samfélagsmiðlum og benti á sláandi líkindi með hönnun hennar frá árinu 2017 og táknum og grafík sem birtast í væntanlegum leik Bungie, Marathon.
Leikurinn var í Alpha prófunum á dögunum og mörg skjáskot og myndbönd hafa verið birt á Netinu. Listakonan sýndi nokkur dæmi um grafík sem hún er höfundur að og er í leiknum og tók fram að Bungie hafi hvorki beðið um leyfi til að nota hennar hönnun né greitt fyrir verkin.
Marathon teymið svaraði fyrir sig á Bluesky og sagði að fyrrverandi starfsmaður hefði vistað hönnunarskjöl sem síðar var ákveðið að nota í leiknum. Ljóst er af umræðum sem sköpuðust í kjölfarið að ekki allir kaupa þessar skýringar Bungie og fyrirtækið er hvatt til að gera hreint fyrir sínum dyrum.
We immediately investigated a concern regarding unauthorized use of artist decals in Marathon and confirmed that a former Bungie artist included these in a texture sheet that was ultimately used in-game.
— Marathon Team (@marathonteam.bungie.net) 2025-05-16T03:21:59.122Z
Nánar:
Fyrri umfjöllun okkar um Marathon