Vefkynningin VR Games Showcase var send út í síðasta mánuði. Meðal fyrirtækja sem tóku þátt var Flat2VR Studios en það sérhæfir sig í umbreytingu hefðbundinna leikja í sýndarveruleika útgáfur. Nokkrir væntanlegir PSVR2 titlar á þeirra vegum voru kynntir og fjöllum við um þá hér.
Out of Sight VR
Hrollvekjan fjallar um blindu stúlkuna Sophie sem sér með augum bangsans síns. Hún er föst í draugalegu húsi og þarf að rata um dimma ganga og herbergi og leysa þrautir á sama tíma og hún forðast hættur sem felast í hverju skúmaskoti. Leikurinn er hugarfóstur sænska stúdíóisins The Gang.
Stikla:
Roboquest VR
RyseUp Studios og Starbreeze Publishing eiga heiðurinn að þessum framtíðar fyrstu persónu skotleik þar sem heimurinn er rústir einar og þú þarft að kljást við illvíg vélmenni, annað hvort ein(n) eða í félagi við aðra.
Stikla:
Shadowgate VR: The Mines of Mythrok
Galdrar og dýflissur eru í forgrunni og mun þetta vera í fyrsta sinn sem leikur úr Shadowgate seríunni er spilanlegur í sýndarveruleika.
Stikla:
Surviving Mars – Pioneer
Stúdíóið Bolverk Games og útgefandinn Paradox Interactive hafa framleitt survival ævintýri sem gerist á rauðu plánetunni. Í leiknum þarftu að stýra námugröfti á Mars og halda lífi með því að stjórna lífsnauðsynlegum auðlindum eins og lofti, vatni og matvælum.
Stikla:
Wrath: Aeon of Ruin VR
Þarna er um að ræða klassískan fyrstu persónu skotleik í anda leikja frá tíunda áratug síðustu aldar.
Postal 2 VR
Í deiglunni er endurgerð þessarar goðsagnakenndu open world morð-orgíu.

Nánar:
VR Games Showcase: https://vrgamesshowcase.com
Umfjöllun PlayStation Blog: https://blog.playstation.com/2025/03/11/out-of-sight-vr-roboquest-vr-surviving-mars-pioneer-and-more-ps-vr2-games-announced-from-flat2vr-studios