
Sony sýndi væntanlegar leikjaútgáfur fyrir PlayStation á State of Play vefkynningu í gærkvöldi. Við tókum saman það helsta sem þar kom fram.
Lumines Arise er nýr leikur frá höfundum Tetris Effect og er væntanlegur fyrir PS5 og PSVR2 í haust. Nánar um það hér: Stikla
Capcom sýndi gameplay stiklu úr þriðju persónu vísindaævintýrinu Pragmata. Leikurinn kemur út fyrir PS5 á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla
Næst fengum við að berja augum Romeo is a Dead Man, frumlegan hasarleik frá Grasshopper Manufacture. Vonast er til að leikurinn komi út árið 2026. Nánar um það hér: Stikla
Við fengum að sjá meira af Silent Hill f frá Konami, en hrollvekjan hefur fengið útgáfudag, 25. september. Nánar um það hér: Umfjöllun
Bloodstained: The Scarlet Engagement er framhald af vinsælum indie leik sem kom út árið 2019. Leikurinn er væntanlegur á næsta ári. Nánar um það hér: Umfjöllun
Safnkvikindaleikurinn Digimon Story Time Stranger hefur fengið útgáfudag, sá kemur út 3. október. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Endurgerð hins klassíska Final Fantasy Tactics – The Ivalice Chronicles er væntanleg fyrir PS4 og PS5 í haust. Nánar um það hér: Umfjöllun
Baby Steps er furðulegur könnunarleikur með húmorinn í lagi og kemur út 8. september. Nánar um það hér: Stikla
Hirogami er frumlegur platform leikur þar sem þú getur breytt um form til að leysa verkefni. Væntanlegur fyrir PS5 þann 3. september. Nánar um það hér: Stikla
Nýjasta innleggið í hinni vinsælu golfseríu Everybody’s Golf heitir Hot Shots og kemur út á PS5 þann 5. september. Nánar um það hér: Stikla
Ninja Gaiden Ragebound er væntanlegur fyrir PS4 og PS5 þann 31. júlí. Nánar um það hér: Umfjöllun
Klifurhermirinn Cairn frá The Game Bakers hefur fengið útgáfudag, 5. nóvember. Nánar um það hér: Umfjöllun
Digital Eclipse, sem sérhæfa sig í endurútgáfum klassískra leikja, kynntu nýjustu afurð sína, Mortal Kombat Legacy Kollection. Þar er um að ræða safn af fyrstu leikjunum í þessari goðsagnakenndu seríu. Kemur út síðar á árinu fyrir PS4 og PS5. Nánar um það hér: Stikla
Við fengum að sjá nýja stiklu úr Metal Gear Solid Delta frá Konami og einnig var staðfest að leikurinn kæmi út þann 28. ágúst. Nánar um það hér: Umfjöllun
Koei Tecmo og Team Ninja kynntu hasarleikinn Nioh 3. Leikurinn er væntanlegur snemma á næsta ári. Alpha prufuútgáfa er fáanleg á PlayStation Store. Nánar um það hér: Stikla
PSVR2 leikurinn Thief VR: Legacy of Shadow er væntanlegur síðar á árinu. Leikurinn er samstarfsverkefni Maze Theory, Vertigo Games og Eidos-Montréal. Nánar um það hér: Stikla
Tides of Tomorrow er nýtt vísindaævintýri sem gerist í framtíðarveröld sem flætt hefur yfir. Kemur út fyrir PS5 þann 24. febrúar 2026. Nánar um það hér: Stikla
Team Asobi kynntu uppfærslu fyrir hinn vinsæla Astro Bot sem kemur síðar í mánuðinum. Viðbótin færir spilurum 5 nýja heima til að glíma við og sigra. Nánar um það hér: Stikla
Sea of Remnants er nýr RPG sjóræningjaleikur sem kemur út fyrir PS5 á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla
Giant Squid eru að senda frá sér nýjan leik í haust sem heitir Sword of the Sea. Fyrirtækið er þekkt fyrir leiki eins og ABZÛ, The Pathless, og Journey. Kemur út fyrir PS5 þann 19. ágúst. Nánar um það hér: Umfjöllun
FBC Firebreak er co-op leikur frá Remedy sem gerist í heimi Control. Leikurinn er væntanlegur fyrir PlayStation 5 þann 17. júní. Nánar um það hér: Stikla
Næst fengum við að sjá fyrstu stikluna úr væntanlegum leik IO Interactive um leyniþjónustumanninn James Bond. Sá heitir 007 First Light og kemur út á næsta ári. Nánar um það hér: Umfjöllun
Marvel Tōkon: Fighting Souls er nýr slagsmálaleikur úr smiðju Arc System Works, PlayStation XDEV Studios og Marvel Games. Leikurinn kemur út á næsta ári fyrir PS5. Nánar um það hér: Stikla