
Epic Games héldu kynninguna State of Unreal í gær þar sem fyrirtækið fjallaði um nýjungar í leikjavél þeirra, Unreal Engine. Meðal þess sem þar kom fram var ný stikla úr The Witcher 4 frá CD Projekt Red.
Tekið var fram að um væri að ræða tæknikynningu þar sem áherslan var meira á leikjavélina en leikinn sjálfan. The Witcher 4 er í þróun hjá CDPR og er ekki væntanlegur á markað fyrr en í fyrsta lagi á síðari hluta ársins 2026.
Það vakti athygli að kynningin var á staðlaðri PlayStation 5 vél (ekki PS5 Pro) en þrátt fyrir það keyrði leikurinn á 60fps með ray tracing lýsingu. Það ber þó að taka því með fyrirvara að fullkláraður leikur muni ná þeim gæðum sem þarna voru sýnd.
Nánar:
Vefsíða The Witcher 4: https://www.thewitcher.com/is/en
Stikla: