
Fyrr í kvöld streymdi Sony kynningunni State of Play þar sem fyrirtækið sýndi úrval af væntanlegum PlayStation titlum. Við tókum saman það helsta sem þar kom fram.
PlayStation stúdíóið Housemarque reið á vaðið og sýndi gameplay stiklu fyrir hasar ævintýrið Saros. Leikurinn kemur út fyrir PlayStation 5 þann 20. mars 2026. Nánar um það hér: Stikla
Næst fengum við að sjá Zero Parades – For Dead Spies sem er nýr leikur frá ZA/UM, höfundum Disco Elysium. Leikurinn kemur á næsta ári fyrir PS5. Nánar um það hér: Stikla
Microsoft Flight Simulator 2024 er að koma út fyrir PlayStation 5 þann 8. desember. Leikurinn fær ókeypis PSVR2 uppfærslu á næsta ári. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Við fengum að berja augum stiklu fyrir single player hluta Battlefield 6 en leikurinn kemur á markað þann 10. október. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Deus Ex Remastered kemur út fyrir PS5 þann 5. febrúar 2026. Nánar um það hér: Stikla
IllFonic kynnti hrollvekjuna Halloween. Leikurinn byggir á kvikmyndinni sem kom út árið 1978 og er væntanlegur á markað 8. september 2026. Nánar um það hér: Stikla
Hasar hlutverkaleikurinn Last Epoch er væntanlegur fyrir PS5 og verður gefinn út ásamt viðbótinni Orobyss. Nánar um það hér: Stikla
Open-world hasar RPG ævintýrið The Seven Deadly Sins: Origin hefur fengið útgáfudag en leikurinn er væntanlegur fyrir PlayStation 5 þann 28. janúar á næsta ári. Nánar um það hér: Umfjöllun
SEGA kynntu Mega Man DLC viðbót sem kemur út á næsta ári fyrir Sonic Racing: CrossWorlds. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Næstir á blað voru Koei Tecmo sem kynntu útgáfudag Nioh 3. Leikurinn verður gefinn út þann 6. febrúar 2026 fyrir PS5. Nánar um það hér: Stikla
Sama fyrirtæki er að senda frá sér endurgerðina Dynasty Warriors 3: Complete Edition Remastered á næsta ári. Leikurinn kemur út fyrir PlayStation 5 þann 19. mars 2026. Nánar um það hér: Stikla
Bandai Namco sýndu stiklu fyrir Code Vein II en leikurinn kemur út fyrir PS5 þann 30. janúar á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla
Square Enix sögðu frá Final Fantasy Tactics – The Ivalice Chronicles sem er endurgerð af klassískum PlayStation leik og kemur út fyrir PS4 og PS5 þann 30. september. Nánar um það hér: Umfjöllun
Roguelite survival hasarleikurinn Let It Die: Inferno er væntanlegur fyrir PlayStation 5 þann 3. desember. Nánar um það hér: Stikla
DeskWorks og Shueisha Games sýndu stiklu úr væntanlegum leik þeirra, Chronoscript: The Endless End. Leikurinn kemur út fyrir PS5 á næsta ári. Nánar um það hér: Stikla
Hasar ævintýri Pearl Abyss, Crimson Desert, hefur loks fengið útgáfudag. Leikurinn kemur út fyrir PlayStation 5 þann 19. mars 2026. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Sony stúdíóið Polyphony Digital sögðu frá því að Gran Turismo serían hefði fyrr á árinu náð þeim áfanga að hafa selst í meira en 100 milljón eintökum. Því verður fagnað í desember með ókeypis uppfærslu fyrir Gran Turismo 7 sem kallast Spec III og mun innihalda m.a. nýjar brautir og bíla. Nánar um það hér: Stikla
Að lokum var það rúsínan í pylsuendanum, Insomniac Games sýndu okkur nýja stiklu úr Marvel’s Wolverine og kynntu að leikurinn kæmi út fyrir PS5 haustið 2026. Nánar um það hér: Umfjöllun, Stikla
Nánar:
Samantekt PlayStation Blog: https://blog.playstation.com/2025/09/24/state-of-play-september-2025-all-announcements-trailers