
Eftir frekar dræmar viðtökur síðasta leiks í seríunni sem kom út árið 2021, Battlefield 2042, ákváðu Electronic Arts að leggja allt í sölurnar við þróun Battlefield 6. Auk DICE, sem hafa verið aðalhönnuðir Battlefield seríunnar allt frá árinu 2005, koma fleiri dótturfélög EA að framleiðslunni. Þetta eru stúdíóin Criterion Games, Motive Studios og Ripple Effect Studios sem ásamt DICE kallast núna Battlefield Studios.
Í upphafi árs var hleypt af stokkunum verkefni sem kallast „Battlefield Labs“ en þar gátu þróunaraðilar prófað hina ýmsu þætti nýja leiksins og skráðir notendur spilað hann í prufuútgáfu. Beta prófanir á Battlefield 6 voru í ágúst og þóttu takast afar vel en meira en hálf milljón spilara tók þátt.
Leikurinn er sagður sækja innblástur til BF3 og BF4 sem báðir fengu góðar viðtökur og seldust í bílförmum. Samkvæmt heimildum hefur þróun Battlefield 6 kostað EA meira en 400 milljónir bandaríkjadala sem gerir leikinn að einum þeim dýrasta í sögunni. Það er því mikið undir hjá fyrirtækinu að vel takist til.
Fjölspilunarmöguleikar í Battlefield 6 eru Conquest, Breakthrough, Rush, Team Deathmatch, Squad Deathmatch, Domination og King of the Hill sem allir ættu að vera aðdáendum seríunnar að góðu kunnir. Nýr valkostur, Escalation, verður einnig í boði sem og battle royale útgáfa. Auk þess verður hægt að spila single player sögu (campaign) í leiknum sem gerist árið 2027 og fjallar um baráttu á milli NATO herdeilda og sveita málaliða sem kallast Pax Armata.
Nánar um leikinn:
The ultimate all-out warfare experience. Fight in high-intensity infantry combat. Rip through the skies in aerial dogfights. Demolish your environment for a strategic advantage. Harness complete control over every action and movement using the Kinesthetic Combat System. In a war of tanks, fighter jets, and massive combat arsenals, the deadliest weapon is your squad.
MULTIPLAYER
Seize glory in iconic, large-scale modes like Conquest, Breakthrough, and Rush. Jump into fast-paced intense experiences with King of the Hill and Domination. Fight in iconic locations all over the world like Cairo, Brooklyn, Gibraltar and more.
GLOBAL SCALE CAMPAIGN
Campaign is back. Drive tanks across the Sahara. Storm the beaches of Gibraltar. Defend New York from invasion. Join an elite squad of Marine Raiders fighting relentlessly to save a world on the edge of collapse.
PORTAL
Take unprecedented control of your environment by moving, scaling, and duplicating objects. Create your own gamemode and custom UI. Design unique multiplayer experiences using NPC scripting. Your creation can rise the ranks to become an official mode.
MAPS
5 Theaters of War, 9 Maps, with hand-crafted Combat Zones to maximize variety. Fight in iconic locations all over the world like Cairo, Brooklyn, Gibraltar and more.
CLASSES
Battlefield is about empowering your squad to play the way you want. Choose from four core classes: Assault, Support, Engineer, and Recon, each with distinct perks and gadgets.
Battlefield 6 kemur út fyrir PlayStation 5 þann 10. október. Leikurinn verður einnig fáanlegur fyrir Xbox Series og PC vélar.
Nánar:
Vefsíða: https://www.ea.com/games/battlefield/battlefield-6
Stikla: