
Sp. Góðan dag og þakka þér tækifærið að fá að kynnast fyrirtækinu ykkar og væntanlegri leikjaútgáfu. Getur þú sagt mér frá tilurð Smallthing Studios, hverjir vinna þar og framtíðarsýn?
Sv. Smallthing Studios var stofnað fyrir bráðum sjö árum síðan með það að markmiði að framleiða innihaldsríkar sögur með listrænni nálgun. Ég fékk þá hugmynd að búa til forsögu að ævintýrinu Simon The Sorcerer og við höfum unnið að verkefninu síðan.
Teymið samanstendur af reynsluboltum og nýliðum sem öll hafa mikla ástríðu til að framleiða leiki sem snerta við spilurum.
Við erum með nokkur útibú, aðal skrifstofan er í Liguria, sem er fiskimannabær í norð-vestur hluta Ítalíu. Stúdíóið okkar er hannað eins og gamalt Hollywood kvikmyndaver.
Sp. Hvað fékk ykkur til að vilja endurvekja þessa leikjaseríu sem hefur legið í dvala um hríð?
Sv. Ég elska fyrsta leikinn í seríunni! Mér þótti og þykir enn, sá leikur ákaflega frumlegur og djúpur fyrir þann tíma þegar hann kom fyrst út. Aðalsöguhetjan er svo vel útfærð, með sinn besservisser persónuleika.
Fyrir mörgum árum fékk ég þá hugmynd að endurvekja seríuna með nýrri sögu sem gerist fyrir atburði fyrsta leiksins. Við kynntum hugmyndir okkar fyrir upprunalegu höfundunum Mike og Simon Woodroffe og þeir sýndu verkefninu áhuga.
Sp. Það kemur inn á næstu spurningu. Koma höfundar upprunalega leiksins (Adventure Soft) að gerð Origins?
Sv. Nei, sagan er öll okkar hugarsmíð, en höfundar upprunalegu leikjanna hafa fylgst vel með þróun Origins og hvatt okkur áfram. Þegar handrit leiksins var því sem næst fullbúið las Simon Woodroffe það yfir og tilkynnti okkur að það væri fullkomið – og besta saga í seríunni síðan upprunalegi leikurinn kom út.
Sp. Það sem ég hef fengið að sjá af leiknum lítur ákaflega vel út. Ég er alveg að fíla þennan handteiknaða stíl. Hvaðan kemur innblástur ykkar?
Sv. Þakka þér hrósið. Útlit leiksins var okkur áskorun frá fyrsta degi. Við vildum skapa nútíma útlit í stíl teiknimynda frá 10. áratug síðustu aldar til fyrsta áratugs 21. aldarinnar. Ásamt listrænum stjórnanda verkefnisins, Giulia Valentini, ákváðum við að yfirbragð leiksins yrði allt í anda þess að hafa verið framleitt af teiknimyndafyrirtækjum þess tíma.
Við erum innblásin af Disney og Don Bluth sem gáfu út klassískar teiknimyndir á þessum árum og ákváðum að allt í Origins yrði handteiknað. Bakgrunnar, persónur og hreyfingar eru í þessum stíl og ýtir undir tilfinninguna um tímabilið, atburði og persónur.
Semsagt, risastórt verkefni sem fékk okkur til að framleiða 15 þúsund handteiknaða ramma af hreyfingum, atriðum og bakgrunnum. Já, þetta tók okkur 5 ár.
Sp. Annað sem vakti athygli mína er að þið gefið leikinn út á nánast öllum fáanlegum stýrikerfum og vélum.
Sv. Já, það var okkar ákvörðun og fjárfesting. Við vildum að leikurinn yrði fáanlegur á sem flestum gerðum véla og virkaði vel á þeim stýrikerfum sem hann kæmi út. Til dæmis er Nintendo Switch útgáfan sérstaklega framleidd fyrir þá vél og virkar vel. Leikurinn er fáanlegur á PC, Mac, Linux, PS5, PS4, Xbox One, Xbox Series og Steam Deck. Switch og Steam Deck útgáfurnar styðja snertiskjái.
Sp. Ég er aðdáandi Terry Pratchett og Discworld seríunnar. Eftir því sem ég kemst næst er húmorinn í Simon the Sorcerer innblásinn af verkum Pratchett?
Sv. Já og upprunalega ævintýrið sækir einnig innblástur frá J. R. R. Tolkien og norður-evrópskum ævintýrum. Við gerðum okkar besta til að halda þessum áhrifum í Origins.
Sp. Ég er forvitinn að vita hvort stúdíóið vinni að fleiri verkefnum um þessar mundir. Eitthvað sem má segja frá?
Sv. Við erum með nokkur verkefni í deiglunni, sum hver hafa verið í vinnslu um árabil. Eitt verkefni er nánast tilbúið fyrir útgáfu eftir að hafa verið í þróun sl. fjögur ár. En við erum hógvær og viljum ekki lofa upp í ermina. Við viljum gefa leiki út þegar þeir eru tilbúnir.
Simon The Sorcerer ORIGINS kemur út á PS4 og PS5 þann 28. október. Samtímis er áætluð útgáfa fyrir Nintendo Switch, Microsoft Xbox, Linux, Mac og PC vélar.
Nánar:
Simon the Sorcerer serían endurvakin í Origins: https://psfrettir.com/2025/07/07/simon-the-sorcerer-snyr-aftur-i-origins
Smallthing Studios: https://smallthingstudios.com
Útgefandinn ININ Games: https://iningames.com
Stikla: