
Þegar eldri leikir eru annað hvort endurútgefnir eða endurgerðir fyrir nýrri leikjavélar kemur oft upp sú umræða hvort útgefendur séu bara að reyna að græða á gömlu efni og hvort ekki væri nær að eyða púðri í að skapa eitthvað nýtt.
Þetta samtal hefur til dæmis verið áberandi á samfélagsmiðlum varðandi útgáfu tveggja leikja sem eru væntanlegir á markað á næstunni.
Annars vegar er um að ræða PS4 leikinn Days Gone sem kom út árið 2019. Leikurinn fékk ágætis dóma en seldist ekki í bílförmum. Fyrirhuguð er endurgerð fyrir PlayStation 5 og kemur út á næstu dögum.
Hins vegar er það The Elder Scrolls IV: Oblivion sem er RPG ævintýri sem kom fyrst á markað árið 2006. Leikurinn hefur verið endurhannaður fyrir nýrri leikjavélar með uppfærðri grafík, hljóði, stýringum og stillingum svo hann sé aðgengilegri fyrir spilara.
Það verður alltaf dýrara og dýrara fyrir stór stúdíó að framleiða nýja leiki. Kröfur markaðarins í dag eru miklar og ekki óalgengt að stærri leikir taki 5-10 ár í framleiðslu. Á sama tíma er það nánast dauðadómur fyrir stúdíó ef leikur floppar, þ.e. selst ekki í því magni sem stefnt var að.
Því er ekki erfitt að skilja að fyrirtækin sæki í reynslubankann og endurgeri leiki sem áður hafa skilað góðum tekjum. Í tilfelli Bethesda með Elder Scrolls IV er það augljóst. Upprunalegi leikurinn kom út fyrir nærri 20 árum og upp er komin heil kynslóð spilara sem hefur ekki kynnst þessu frábæra RPG ævintýri fyrr en nú.
Days Gone var ágætlega vel heppnaður leikur frá dótturfyrirtæki Sony, Bend Studio. Við útgáfu þótti hann þó ekki keyra nógu vel á PlayStation 4. Hugsanlega fór stúdíóið fram úr sjálfu sér og ætlaði sér of mikið miðað við hvað vélin ræður við en síðan þá hefur leikurinn fengið uppfærslur sem laga frammistöðuna á PS4. Leikurinn kom svo út á PC árið 2021.
Áðurnefndar endurútgáfur/endurgerðir bjóða upp á margt fleira en bara uppfærslu á grafík. Elder Scrolls IV hefur verið færður í Unreal Engine 5 leikjavélina með margvíslegum endurbótum á stýringum, hreyfingum og hljóði, svo fátt eitt sé nefnt. Með endurútgáfunni fylgja líka aukapakkarnir (DLC) The Shivering Isles og Knights of the Nine.
Days Gone PS5 endurútgáfan inniheldur tvær nýjar leiðir til að spila leikinn, Horde Assault og Permadeath. Fyrir þá sem hafa keypt leikinn áður á PS4 eða PS5 kostar uppfærsla í nýju útgáfuna 10 dollara / 10 evrur.
Eins og alltaf áður er það val spilara hvort þeir kaupi endurútgáfur / endurgerðir eldri leikja. En að röfla yfir þessu á samfélagsmiðlum er bara tímasóun.
Nánar:
The Elder Scrolls IV: Oblivion Remastered
Push Square: Samanburður á gömlu og nýju útgáfunni á Oblivion
Bend Studio: Það sem er nýtt í Days Gone Remastered
Stikla: