
Það var af nógu að taka á State of Play vefkynningu Sony á dögunum. Einn af þeim leikjum sem kom á óvart var Lost Soul Aside frá kínverska stúdíóinu UltiZeroGames.
Leikurinn Lost Soul Aside er hluti af China Hero Project verkefni Sony sem miðar að því að koma fleiri kínverskum leikjafyrirtækjum á framfæri. Stuðningur Sony felst m.a. í aðstoð við þróun, útgáfu og markaðssetningu leikjanna og hafa nokkrir titlar komið út á þeirra vegum nú þegar og fleiri á leiðinni. Má þar nefna leikina ANNO: Mutationem, F.I.S.T.: Forged in Shadow Torch og AI LIMIT.
Í Lost Soul Aside stígur þú í spor kappans Kazer sem leitar týndrar systur sinnar og reynir að bjarga mannkyni frá útrýmingu í leiðinni. Þetta er hasar hlutverkaleikur sem er undir áhrifum titla eins og Devil May Cry, Nier Automata og Stellar Blade með dassi af Final Fantasy og er þar ekki leiðum að líkjast.
Nánar um leikinn:
Embark on an epic odyssey to save your sister and the whole of humankind from dimensional invaders in Lost Soul Aside – a stylish single player action-adventure RPG. Chain lightning-fast combos, learn new abilities, and upgrade your weapons as you take on formidable enemies and colossal bosses in fast, dynamic combat.
Lost Soul Aside verður gefinn út fyrir PlayStation 5 þann 30. maí.
Nánar:
Lost Soul Aside á X: https://x.com/Lost_Soul_Aside
Umfjöllun PlayStation Blog: https://blog.playstation.com/2025/02/12/lost-soul-aside-launches-on-ps5-and-pc-may-30
Stikla: