
Kóreski útgefandinn Krafton sem keypti Unknown Worlds, þróunaraðila Subnautica seríunnar árið 2021, ákvað að reka forstjóra og tvo stofnendur UW fyrr í vikunni. Stendur deilan um stöðu leiksins sem átti að koma út á þessu ári og 250 milljón dollara greiðslu sem Krafton hafði skuldbundið sig til að greiða stjórnendum fyrir árangur Subnautica seríunnar.
Krafton vill meina að Subnautica 2 sé ekki tilbúinn til útgáfu vegna lélegrar frammistöðu forsvarsmanna Unknown Worlds, stofnendanna Charlie Cleveland og Max McGuire og forstjórans Ted Gill. Þremenningarnir hafna þessum ásökunum og hafa höfðað mál á hendur útgefandanum vegna samningsbrots.
Fyrsti leikurinn í Subnautica seríunni kom út árið 2018. Um er að ræða neðansjávar survival ævintýri sem hlaut góða dóma og seldist afar vel. Framhaldsleikurinn Subnautica: Below Zero kom út árið 2021 og skömmu síðar keypti Krafton fyrirtækið með húð og hári.
Krafton er Suður-Kóreskur útgefandi sem er einna helst þekktur fyrir að vera móðurfélag PUBG Studios og Tango Gameworks.
Útgáfu Subnautica 2 hefur nú verið frestað fram á næsta ár a.m.k. aðdáendum seríunnar til mikillar skapraunar.
Nánar:
Krafton tilkynnir nýjan forstjóra fyrir Unknown Worlds: https://www.krafton.com/en/news/press/krafton-announces-gaming-industry-veteran-steve-papoutsis-as-new-ceo-of-unknown-worlds
Charlie Cleveland um væntanlega málsókn gegn Krafton: https://www.reddit.com/r/subnautica/comments/1lwsxco/lawsuit_a_community_update_from_charlie