
Síðan árið 2008 hefur vefurinn eSports.is haldið úti öflugri umfjöllun um rafíþróttasenuna á Íslandi.
Þar að auki birtir vefsíðan fréttir af nýjum leikjaútgáfum, viðtöl, leikjarýni og fjallar um helstu strauma og stefnur í leikjamenningu. Þessi fjölbreytileiki hefur fest vefinn í sessi sem miðpunkt upplýsingagjafar um rafíþróttir og tölvuleiki almennt.
Stefna eSports.is er að vaxa í takt við eflingu rafíþrótta á Íslandi og halda uppi fagmannlegri umfjöllun um tölvuleiki og þeirri menningu sem fylgir.
Nánar:
Vefsíða eSports.is – http://www.esports.is
eSorts.is á X: https://x.com/eSportsis
FaceBook hópurinn Tölvuleikir, mót & fréttir: https://www.facebook.com/groups/1551873138833113